Fara í efni

Bjartmar og Bergrisarnir á trúnó

Til baka í viðburði
Hvenær
fimmtudagur, 10 október
Hvar
Hjallavegur 2
Klukkan
20:00-22:00

Bjartmar og Bergrisarnir á trúnó

Á trúnó-tónleikum í Hljómahöll fá gestir að upplifa mikla nánd við listamennina. Tónleikarnir fara fram í Bergi sem rúmar um 100 gesti og er þó engu til sparað þegar kemur að hljóðgæðum eða lýsingu á tónleikunum. Mætti jafnvel lýsa þeim sem stórtónleikum í litlum sal.

Bjartmar Guðlaugsson og Bergrisarnir verða á trúnó á tónleikum í Bergi í Hljómahöll þann 10. október. Bjartmar þarf vart að kynna fyrir nokkrum tónlistarunnanda en lög hans og texta þekkja allir! Bjartmar hefur gefið út 16 sólóplötur á ferli sínum og er því af nægu að taka. Hver veit nema að lög á borð fyrir Týnda kynslóðin, Ég er ekki alki, Súrmjólk í hádeginu, Fimmtán ára á föstu, Járnkarlinn, Sumarliði er fullur, Þannig týnist tíminn, Negril eða hans nýjasta lag Af því bara fái að hljóma á tónleikunum þann 10. október?

Hljómsveitin hefur verið iðin við tónleikahald undanfarið og útgáfu á nýjum lögum og textum eftir Bjartmar og má þar nefna, Á ekki eitt einasta orð, Af því bara og nýjasta lagið þeirra Veistu hver ég er?

Bergrisarnir eru:

-Bjartmar Guðlaugsson
-Júlíus Freyr Guðmundsson
-Arnar Gíslason
-Birkir Rafn Gíslason
-Daði Birgisson

Húsið opnar kl. 19:00 og tónleikar hefjast kl. 20:00.

6900

Aðrir viðburðir

5. jún

Opnun sumarsýninga Byggðasafns og Listasafns Reykjanesbæjar

Duus Safnahús / Duus Museum, Duusgata, Reykjanesbær
5. jún

Eagles - Bestu lög Eagles

Café Bryggjan, Miðgarður, Grindavík
6. jún

Bakkalábandið - Lagst að bryggju

Café Bryggjan, Miðgarður, Grindavík
17. jún

Þrautaleikur fjölskyldunnar

Reykjanesbær