Icelandair flýgur milli Reykjavíkur og Egilsstaða, flugtíminn er 60 mínútur.
Öflugar menningarhátíðir, Vök Baths, Lagarfljótið, Minjasafn Austurlands og frábærir veitingastaðir er meðal þess sem Austurland hefur að bjóða gestum.
Atlantsflug býður uppá útsýnisflug í flugvélum eða þyrlum allt árið um kring frá flugvelli okkar í Skaftafelli ásamt því að taka að sé fjölbreytt sérverkefni um allt land. Flugfloti okkar hefur verið sérstaklega valinn til þess að sinna útsýnisflugi þar sem allir farþegar njóta besta útsýnis sem völ er á.
Atlantsflug hefur boðið uppá útsýnisflug frá árinu 2004 og byggir því fyrirtækið á traustum grunni og mikilli sérþekkingu á okkar sviði, sem tryggir viðskiptavinum okkar hámarks upplifun, þjónustu og öryggi. Árið 2018 hlaut félagið Luxury Travel Guide‘s Lifestyle Award sem Ferðasali Ársins á Íslandi 2018/2019.
Við bjóðum upp á persónulega þjónstu, sem hentar sérstaklega vel fyrir smærri hópa. Yfir vetrartímann bjóðum við uppá samsetta íshella og þyrluferð frá Skaftafelli.
Ásamt því að bjóða uppá útsýnisflug hefur félagið mikla reynslu af einkaflugum og hvers kyns leiguflugum fyrir einstaklinga og/eða hópa. Vélar okkar eru einnig útbúnar opnanlegum gluggum sem henta einstaklega vel í ljósmyndaflug.
Hikið ekki við að hafa samband fyrir frekari upplýsingar
Icelandair flýgur reglulega á milli Reykjavíkur og Akureyrar frá Reykjavíkurflugvelli. Flugtíminn er aðeins 45 mínútur og því er innanlandsflug tilvalið fyrir þau sem vilja skjótast norður og skoða allt það góða sem Akureyri hefur upp á að bjóða. Kjarnaskógur, Hlíðarfjall, Listagilið, Hof, Eyrin, Þelamörk og Sveitin eru allt dæmi um hrífandi staði svæðisins.
Frá Reykjavíkurflugvelli er einnig boðið upp á flug til Ísafjarðar og Egilsstaða.
Icelandair er leiðandi flugfélag sem býður ferðir til og frá Íslandi og er hagstæður kostur fyrir flug yfir Atlantshafið. Félagið einbeitir sér að veita viðskiptavinum sínum öruggar og traustar flugferðir sem og einstaka þjónustu. Icelandair flýgur til margra stórborga í Evrópu, Bandaríkjunum og Kanada.
Félagið notar staðsetningu Íslands sem er mitt á milli Ameríku og Evrópu sem viðskiptatækifæri og hefur byggt upp alþjóðalegt leiðakerfi með Ísland sem miðpunkt.
Icelandair er hluti af Icelandair Group.
Icelandair flýgur til Reykjavíkur frá Akureyri, Egilsstöðum, Ísafirði og Vestmannaeyjum.
Nú er um að gera að dusta rykið af töskunni, hressa ferðafélagana við, pússa skóna og skipuleggja alíslenska borgarferð um höfuðstaðinn. Söfnin, verslanirnar og kaffihúsin á daginn og veitingastaðirnir og kósíheit á kvöldin, njótum borgarinnar okkar.
Publictranport.is:
Á vefnum www.publictransport.is er að finna ítarlegar upplýsingar um almenningssamgöngur á Íslandi, bæði rútur, flug og ferjur.
Aðrar gagnlegar síður um almenningssamgöngur eru m.a.:
Rútur: Strætó: Smellið hér
Flug:
Ferjur:
Einnig má benda á svæðisbundnar upplýsingar um almenningssamgöngur, sem finna má á landshlutavefjunum: