Fara í efni

Mugison í Eskifjarðarkirkju

Til baka í viðburði
Hvenær
þriðjudagur, 25 júní
Hvar
Klukkan
20:00

Mugison í Eskifjarðarkirkju

Hæ hæ kæri Eskifjörður Hlakka mikið til að stoppa í fallega bænum ykkar og spila í menningarstofunni/kirkjunni.
Ég er í geggjuðu Tónleika-Maraþoni, ætla að spila í 100 Kirkjum í 100 Póstnúmerum á innan við ári. Hef lengi verið heillaður af öllum þessum kirkjum, þær eru út um allt - í sveitunum, bæjum og öllum hverfum - allstaðar er kirkja - svo fallegar, dulafullar, kósý og spennandi.
Ég elska að spila í kirkjum það er eitthvað svo skemmtilega öfgafullt - einsog sum sönglög verði brothættari og fallegri og önnur ýkjast í hina áttina verða gróf og brussuleg. Ég er búinn að sérhanna svið, ljós og hljóðbúnað fyrir þetta tilefni. Verð einn með nokkra gítara, nikku, trommur og kirkjuorgel framtíðarinnar.
Hlakka mjög mikið til að hitta þig í Eskifjarðarkirkju.
Stuðkveðja, Mugison.
Tónleikarnir eru um 60 mínútur
Verð:
4.500 kr í forsölu
5.500 kr við hurð
4500-5500

Aðrir viðburðir

1. maí - 30. sep

Fjarðarbyggðarflakk fjölskylduleikur

Fjarðabyggð
1. maí - 25. sep

Perlur Fljótsdalshéraðs

Egilsstaðir
1. jún - 25. sep

Heiðarbýlin í göngufæri

Fljótsdalshérað