GALLERÍ ÚTHVERFA / OUTVERT ART SPACE : Sýning á verkum Einars Þorsteins
FEROCIOUS GLITTER II 23.5 – 22.8 2020
Einar Þorsteinn - 23.5 – 7.6
Eyborg Guðmundsdóttir - 11.6 – 24.6
Hreinn Friðfinnsson/Sólon Guðmundsson – 27.6 – 12.7
Gabríela Friðriksdóttir 18.7 – 2.8
Donald Judd 8.8 – 22.8
Ferocious Glitter II er röð stuttra sýninga í Gallerí Úthverfu / Outvert Art Space á Ísafirði. Sýningarröðin er áframhald sýningar sem fram fór sumarið 2019. Listamennirnir sem valdir eru til þáttöku eiga sér allir tengingu við menningar- og myndlistarsögu bæjarins. Sýningarstjóri er Gavin Morrison.
Sýning Einars Þorsteins er sjötta sýningin í sýningaröðinni Ferocious Glitter og sú fyrsta í þessum seinni hluta raðarinnar. Á sýningunni eru teikningar, líkan og myndir af byggingum Einars Þorsteins og videóspjall Trausta Valssonar við arkitektinn. Á sýningunni eru myndir og tekning af kúluhúsi Ásthildar Þórðardóttur og Elíasar Skaftasonar við Seljalandsveg 100 á Ísafirði. Flestir munirnir á sýningunni eru fengnir að láni hjá Hönnunarsafni Íslands og gefa innsýn í fræðilega hugsun að baki hússins við Seljalandsveg.
Plaköt og þrívíddarmódel eru til sölu í Úthverfu Listaverkabókabúð.
Gallerí Úthverfa / OUTVERT ART SPACE
opið fimmtudaga – laugardaga kl. 16-18 og eftir samkomulagi
ArtsIceland - Aðalstræti 22 - 400 Ísafjörður