Fara í efni

Líttu þér nær - Ferð fyrir Snæfellinga um Snæfellsnes

Til baka í viðburði
Hvenær
laugardagur, 16 nóvember
Hvar
Gestastofa Snæfellness Breiðabliki
Klukkan
11:00-17:00

Líttu þér nær - Ferð fyrir Snæfellinga um Snæfellsnes

Líttu þér nær - Ferð fyrir Snæfellinga um Snæfellsnes 16. nóv. frá kl. 11:00 til kl. 17:00
 
Hvernig er að vera ferðamaður á heimaslóðum?
 
Við erum gjörn á að leyfa okkur allskonar afþreyingu og gera vel við okkur á ferðalögum. En hvað með að upplifa heimabyggð eins og gestur? Fá sögufylgd um Snæfellsnes, stoppa á vel völdum stöðum og nærast á sál og líkama.
 
Nú smölum við Snæfellingum saman í hópferðabíl og upplifum orku og aðdráttarafl Snæfellsness. Aðdáendur staðsettir utan Snæfellsness eru að sjálfsögðu velkomnir með. Ragnhildur Sigurðardóttir sögufylgja og framkvæmdastjóri Svæðisgarðsins Snæfellsnes sér um leiðsögn.
 
Þátttökugjaldið er 9.800 kr. Frekari upplýsingar og skráning í netfangið hlediss@gmail.com.
 
Áhersla á náttúru og menningu, skoðum nokkra af þeim fjölmörgu stöðum sem skilgreindir eru sem ferðamannastaðir og íbúar og gestir eru velkomnir á. Útilistaverkum verður veitt sérstök athygli.
 
11:00 Mæting í rútu á Breiðabliki, Íbúa- og gestastofu Snæfellsness. Kaffi / te og hressing í boði. Sýning og skoðunarferð um húsið.
 
Heimsækjum öll sveitarfélög á Snæfellsnesi, heyrum sögur, fræðumst og upplifum töfra Snæfellsnes saman. Hádegismatur tekin á góðum stað.
 
17:00 Rútan skilar ferðafólki á Breiðablik. Kaffi og hressing.
 
Þeir sem vilja geta klárað ferðina á einhverjum af þeim frábæru veitingastöðum sem Snæfellsnes hefur uppá að bjóða, margir í grenndinni.
9.800

Aðrir viðburðir