Íslenski bærinn
Íslenski bærinn fóstraði þjóðina í aldanna rás og var um leið vagga innlendrar menningar,allt í senn fallegur, frumlegur og fínlegur í sinni náttúrulegu mýkt. Menningarsetrið Íslenski bærinn er húsaþorp, sýningarstaður, samkomustaður og leikvöllur sem hverfist um íslenska torfbæinn og græna byggingalist. Þar munu gestir upplifa einstakan staðaranda, jafnframt því að skoða sýningar sem útskýra samhengi, þróun og tilbrigði íslenskra torfbæja með það að leiðarljósi að túlka aldagamlan og einstakan arf inn í samtímann með samþættingu, fræðimennsku, listrænni nálgun og varðveislu verkmenningar.
Athyglisverður staður: Þar sem náttúran er hluti af húsinu.