Tryggvaskáli
Tryggvaskáli er einstaklega fallegur a’la carte veitingastaður sem leggur áherslu á vandaða matreiðslu með fókus á hráefni úr héraði.
Með virðingu fyrir störfum bænda, útbúa matreiðslumenn staðarins virkilega vandaðan mat þar sem íslenskar- og erlendar matreiðsluaðferðir blandast skemmtilega saman.
Tryggvaskáli er elsta og sögufrægasta húsið á Selfossi, byggt árið 1890.
Upplifðu góðan mat í einstöku húsi með fallegu útsýni yfir Ölfusá, vatnsmestu á landsins.