Súfistinn
Súfistinn var stofnaður árið 1994 með það að markmiði að taka virkan þátt í að breyta og móta kaffi- og kaffihúsamenningu okkar Íslendinga. Með þetta að leiðarljósi var stofnsett kaffihús í hjarta Hafnarfjarðar en árið 1996 var bókakaffi Súfistans sett á fót í húsnæði Máls og menningar að Laugarvegi 18.
Sérstaða Súfistans sem kaffihúss hefur öðru fremur mótast af því að frá fyrsta degi hefur Súfistinn ristað, „brennt“, sitt eigið hrákaffi í eigin brennsluofni.
Með kaupum á nýju húsnæði fyrir kaffibrennsluna hafa skapast tækifæri til þess að verða við óskum fjölmargra viðskiptavina um að hefja þjónustu við fyrirtæki og stofnanir. Nú þegar eru allmörg fyrirtæki sem nýta sér þessa þjónustu, einnig skólar og bankastofnanir.
Súfistinn hefur fyrir löngu öðlast mikilvægan sess í bæjarlífi Hafnfirðinga. Á Súfistann koma viðskiptavinir á öllum aldri til að hitta mann og annann ásamt því að leysa lífsgátuna með kaffibolla í hönd. Einkennandi fyrir þessa staði er einstök sambúð menningar, bóka, blaða og kaffiveitinga. Hér hafa fjölmargir listamenn, rithöfundar og tónlistarmenn verið reglulegir gestir í gegnum árin og kynnt list sína.
Súfistinn var fyrstur til að opna bókakaffi á Íslandi en einnig var Súfistinn fyrsta reyklausa kaffihúsið á Íslandi
Markmið Súfistans frá upphafi hefur verið að bjóða góðar veitingar á sanngjörnu verði og nú í dag er Súfistinn fyrir löngu orðinn landsþekktur fyrir frábærar tertur, afbragðsgóða smárétti og gott kaffi.
Opið:
Mánudaga - fimmtudaga: kl. 8:15-23:30
Föstudaga: kl. 8:00-23:30
Laugardaga: kl. 10:00-23:30
Sunnudaga: kl. 11:00-23:30