Ráðhústorg 1 Akureyri
Vel útbúin íbúð fyrir allt að 8 manns með góðum svölum á efstu hæð á horni göngugötunnar og Ráðhústorgs. Öll þjónusta, veitingastaðir og verslun í göngufæri.
Í íbúðinni, sem er 108 fermetrar að stærð, eru þrjú svefnherbergi, tvö með tvíbreiðum rúmum þar sem annað er með sér svölum og þriðja svefnherbergið með 4 kojum.
Þessi bjarta og rúmgóða íbúð er með setusvæði, borðstofu og notalegum borðkrók. Svalir eru á tvo vegu í stofu og snúa út að göngugötu og að Ráðhústorgi. Íbúðin er með fullbúnu eldhúsi sem inniheldur eldavél, ísskáp, örbylgjuofn og uppþvottavél. Þá er í íbúðinni gasgrill sem hægt er að nota á svölunum. Snyrtilegt baðherbergi með baði og sturtu. Nýir gluggar með hljóðeinangrandi gleri.
Internet og AppleTV / Netflix innifalið í leigu.