Hornbjargsviti - Ferðafélag Íslands
Í Hornbjargsvita við Látravík er gistiaðstaða fyrir allt að 40 manns.
Húsið er stórt og rúmgott. Sofið er í rúmum og kojum í sjö aðskildum herbergjum. Gott eldhús er á staðnum með öllum áhöldum og útbúnaði og bæði rafmagns- og gaseldavél. Að auki er gott kolagrill við húsið.
Vatnssalerni er inni í húsinu og sturta. Góð aðstaða er til að þurrka blaut föt og skó. Við húsið er tjaldsvæði með aðgangi að vatnssalernum og aðstöðu til að elda og borða í gömlu útihúsi.
Gaman er að gista í skálanum nokkrar nætur og ganga um nærumhverfið. Þaðan er einnig hægt að ganga á Hornbjarg og Hornstrandir eða í Jökulfirði.