Tjaldsvæðið á Drangsnesi
Góð hreinlætisaðstaða með sturtu. Hægt er að komast í þvottavél og þurrkara. Stutt er í verslun, sundlaug, verslun og veitingahús. Drangsnes er góður viðkomustaður á leið í Árneshrepp en þangað eruð um 90 km. Í boði eru siglingar út í Grímsey sem er náttúruparadís. Á svæðinu er íþróttavöllur, ærslabelgur, heitir pottar í fjörunni og margt fleira.
Á tjaldsvæðinu er kolagrill. Hægt að fá samkomuhúsið leigt en þar er góður salur fyrir 120 manns í sæti. Kjörið fyrir ættarmót..
Góð veitinga og gistiaðstaða ásamt afþreyingu á Drangsnesi.
Verð 2021:
Verð fyrir fullorðna: 1.250 kr
Verð fyrir börn: Frítt fyrir yngri en 14 ára
Verð fyrir sturtu: 400 kr
Rafmagn: 1.000 kr
Útilegukortið gildir hjá okkur.