Farfuglaheimilið Akureyri
Akureyri Hostel
Akureyri Hostel er á tveimur hæðum með 18 fallega búnum herbergjum frá eins manns upp í fjögurra manna. Inni á herbergjum eru góð rúm með lesljósi, uppábúnar sængur & koddar ásamt handklæði, góð myrkvunartjöld, borð & stólar, sjónvörp, frír netaðgangur og fleira.
Á efri hæðinni er vel útbúið eldhús og góð mataraðstaða. Átta snyrtingar og sjö sturtur eru sameiginlegar og eru þær á báðum hæðum og þar má einnig finna hárblásara og sturtusápu.
Akureyri Cottages
Tvö rúmgóð og fullbúin sumarhús eru í garðinum hjá Akureyri Hostel. Hvort sumarhús er með gistingu fyrir sex manns. Í hvoru sumarhúsi eru tvö tveggja manna herbergi og á svefnloftinu eru tvö rúm, öll svefnrými eru með góðum myrkvunartjöldum. Fullbúin eldhús eru í sumarhúsunum, stofa með sjónvarpi, baðherbergi með sturtu og þvottahús með þvottavél og þurrkara. Á palli sumarhúsanna eru borð & stólar og grillaðstaða. Í sumarhúsunum er frír netaðgangur.
Í nánasta umhverfi má finna Bónus, bakarí, Dominos, Glerártorg u.þ.b. 400 metra frá og miðbærinn er í um 15 mínútna göngufjarlægð.