5 milljón stjörnu hótelið
5 milljón stjörnu hótelið" er fjölskyldufyrirtæki sem býður upp á gistingu í gegnsæum náttúrukúlum.
Kúlurnar eru staðsettar á tveimur stöðum á Suðurlandi, annars vegar í Bláskógabyggð (Hrosshagi) og hins vegar rétt fyrir utan Selfoss (Ölvisholt) .
Kúlurnar eru upphitaðar með þægilegum rúmum og er hver og ein kúla inn á milli sígrænna trjáa. Hver kúla rúmar 2 fullorðna. Sameiginleg salernisaðstaða er á báðum stöðum en engin veitingasala er til staðar. Hins vegar er stutt í alla þjónustu (Reykholt og Selfoss).
Þar sem kúlurnar í Ölvisholti eru staðsettar uppi á hæð henta þær síður þeim sem eiga erfitt með gang en í Hrosshaga er flatlendi.
Kúlugisting er ævintýri fyrir alla, stóra sem smáa, og skemmtileg nýjung til að njóta íslenskrar náttúru á einstakan og skemmtilegan hátt.