Fara í efni

Fossagangan

Í Jökulsá í Fljótsdal er fjöldi fossa af ýmsum stærðum og gerðum. Þeir neðstu eru skammt fyrir innan eyðibýlið Kleif og síðan allar götur upp að Eyjabökkum. Á þeirri 20 kílómetra leið er fjöldi mikilfenglegra fossa. Fossagangan hefst við Óbyggðasetur Íslands í Norðurdal í Fljótsdal. Þaðan er um 6 klukkustunda þægileg ganga um afar fallegt svæði meðfram Jökulsá í Fljótsdal. Áin rennur víða í gljúfrum og vestan hennar er Kleifarskógur, náttúrulegur birkiskógur sem gamaner að fara um.

Nokkrar l´likkur eru á að rekast á hreindýr á leiðinni. Þegar inn á hásléttuna er komið bíða göngufólks náttúrulaugar við nýjan og glæsilegan fjallaskála við Laugarfell. Fyrir þá sem vilja ganga niður í móti er ágætt að byrja við Laugarfell og ganga niður að Óbyggðasetrinu. Bæði Laugarfell og Óbyggðasetrið bjóða upp á að skutla fólki milli staðanna fyrir eða eftir göngu.