Fara í efni

Grímsey

Grímsey

Grímsey er græn, grösug og einstaklega gjöful eyja. Frægust er Grímsey trúlega í hugum ferðamanna fyrir heimskautsbauginn og kemur fólk gjarnan langa leið, til þess eins að stíga norður fyrir baug. Eyjan er 5,3 km2 að stærð. Hæst er hún 105 metrar og fjarlægð frá "Íslandi" er 41 km.

Mannlífið er kröftugt og bjart og eru Grímseyingar miklir gleðimenn sem vinna og skemmta sér af alhug. Ferjan Sæfari siglir frá Dalvík til Grímseyjar 3 daga í viku allt árið. Reglubundið flug með Flugfélagi Íslands er þangað, 3 sinnum í viku yfir veturinn en sjö daga á sumrum.