Náttúra og útivist
Ljóst má vera að náttúran er helsta aðdráttarafl þeirra sem ferðast um landið. En hver er réttur og hverjar eru skyldur þeirra sem ferðast um Ísland? Í lögum um náttúruvernd eru ákvæði sem fjalla um almannarétt, umgengni og útivist. Þar segir að öllum sé heimilt að fara um landið og njóta náttúru þess án sérstaks leyfis svo fremi að gengið sé vel um og þess gætt að spilla engu. Heimilt er að fara um óræktuð eignarlönd . Rétthöfum lands er heimilt að takmarka með merkingum ferðir manna um eignarlönd. Lönd í eigu ríkisins, svo sem náttúruverndar- og skógræktarsvæði, eru öllum opin með fáum undantekningum. Hægt er að takmarka umferð tímabundið, svo sem yfir varptíma eða vegna gróðurverndar.
Náttúruverndarsvæði eru friðlýst af mismunandi ástæðum. Reglur, t.d. um veiðar og umferð, eru breytilegar milli einstakra svæða og því mikilvægt að ferðamenn afli sér nauðsynlegra upplýsinga. Virðum friðlýsingarreglur og tilmæli landvarða.
Sumir ferðamenn leita á náðir náttúrunnar til að finna frið og ró meðan aðrir sækja þangað ævintýri og spennu. Með auknum straumi ferðamanna er viðbúið að leiðir þessara hópa skarist í auknum mæli. Sýnum tillitssemi við aðra á ferðum okkar svo að komist verði hjá árekstrum.